Við RAKEL höfum ýmislegt brallað í gegnum tíðina en nýjasta brallið okkar var að koma út í dag, það er lag sem við sömdum við ljóðið HÉR eftir Brynju Hjálmsdóttur vinkonu okkar. Spólum aðeins til baka.
Fyrir nokkrum árum datt okkur í hug að semja saman lög við íslensk ljóð. Okkur langaði að prófa að semja tónlist í alvörunni, eða öllu heldur að vera í sama herbergi við ýmis hljóðfæri og spila og syngja. Hvorugt okkar hafði gert mikið af því að semja tónlist á þennan hátt, enda bæði mikið að vinna í stúdíói eða spila á tónleikum. Eða bara semja einn með sjálfum sér. Það tók okkur smá tíma að ná upp rytma í þessu og þá var gott að geta stuðst við texta annarra. Undir lokin vorum við orðin svo sjóuð að nú er ekkert sem stoppar okkur í að semja ennþá fleiri lög saman!
Til þess að fanga enn betur þessa lifandi stemmingu þá fórum við í stúdíó (Hljóðrita í Hafnarfirði) fyrir næstum sléttu ári síðan, með fríðu föruneyti – og tókum upp 6 lög við 6 ljóð. Við lögðum mikið upp úr því að klippa og eftirvinna sem minnst og höfðum því vit á að velja með okkur alveg ofboðslega klára tónlistar- og upptökumenn en það voru þeir Hilmar Jensson gítarleikari, Birgir Steinn Theódórsson bassaleikari, Styrmir Hauksson og Guðm. Kristinn Jónsson upptökumenn.
Við pössuðum að hafa góða stemmingu (sem þýðir að vera með gott kaffi, taka langar kaffipásur og borða mikið af nesti) og töldum svo í lögin eitt af öðru. Nánast engar klippingar, bara spilað beint inn á tölvu. Eins tært og viðkvæmt og það getur verið. Við fundum öll mikla tengingu við tónlistina, tjáninguna og söguna sem óhjákvæmlega er sögð þegar tónlist er túlkuð á þennan hátt. Við drógum fram mennskuna, tilfinningarnar og lékum okkur með litina í tónlistinni og textunum. Þetta var satt best að segja alveg frábært augnablik. Signý Rós vinkona okkar festi þennan dag á gamla vídeóvél (því við erum svo gamaldags og það er svo gaman) og hér fylgir smá myndbrot.
HÉR – Brynja Hjálmsdóttir
Ef þú flettir fingrunum sundur
finnurðu nokkur bil
fingur bil fingur bil fingur
bil fingur bil fingur bilÍ rýminu inni á milli
þar missti ég af þér
þótt hamstola holurnar fylli
er enn þá skarð í mérHér hlóðum við steinum í stíflur
hér drógum við tákn í sand
hér földum við okkur frá öllum
áður en sigldi í strandHálft tungl er alltaf heill máni
hálfmyrkvað og hálfljóst
þú fékkst bara lífið að láni
leist aðeins við og fórstEn auðvitað fór þetta svona
var engin önnur leið
þorði aldrei alveg að vona
og það var það sem sveiðHér hlóðum við steinum í stíflur
hér drógum við tákn í sand
hér földum við okkur frá öllum
áður en sigldi í strandOg það var hér
sem þú varðst eftir
en ég
náði
í land
